Storkuberg myndast við storknun bergkviku. Storkuberg skiptist í gosberg, innskotsberg og djúpberg. Gosberg myndast þegar kvika brýst upp úr jarðskorpunni. Innskotsberg eða gangberg storknar í sprungum ofarlega í jarðskorpunni. Djúpberg er grófkristallað storkuberg sem myndast djúpt í jörðu.
Bergkvika er seigfljótandi efni í iðrum reikistjarna, sem safnast fyrir í kvikuhólfum. Þar getur hún kristallast og myndað innskot eða borist til yfirborðs í eldgosi og storknað sem gosberg.
Bergkvika er seigfljótandi efni í iðrum reikistjarna, sem safnast fyrir í kvikuhólfum. Þar getur hún kristallast og myndað innskot eða borist til yfirborðs í eldgosi og storknað sem gosberg.
Basalt er basískt storkuberg sem er sett saman af plagíóklasi, ólivíni, pýroxeni og seguljárnsteins-steindum. Gjarnan er í því einnig basaltgler. Basalt er með kísilsýru innan við 52%. Basalt er einnig algengasta gosbergið.
Hrafntinna myndast í eldgosum þegar hraunið kólnar og storknar mjög hratt.