Myndbreytt berg er berg, sem áður var storkuberg eða setberg, en hefur orðið fyrir breytingum og efnasamböndum, vegna mikils þrýstings og hita og á þann hátt að upphaflegar steindir hafa að fullu breyst í aðrar fyrir áhrif þrýstings og hita.
Gneis er myndbreytt berg orðið til úr ýmsum bergtegundum við mikinn þrýsting og hátt hitastig í fellingafjöllum. Gneis er sett saman af sömu bergtegundum eins og granít, en þar er meira af glimmeri en minna af feldspati. Gneis einkennist af dökkum og ljósum böndum.