Bergtegundir, eins og, vatn hafa eilífa hringrás. Þegar bráðin kvika finnur sér leið uppá yfirborðið birtist hún í eldgosi og verður að storkubergi. Síðan veðrast storkubergið og roföflin flytja veðraða efnið til sjávar þar sem það hleðst upp í setlög. Þessi setlög verða síðan fyrir miklum þrýstingi og breytist þá í setberg. Ef setbergið verður fyrir áhrifum af en þá meiri þrýstingi og hita breytast upprunalegu steintegundirnar í einhverjar aðrar og mynda myndbreytt berg.